Dagur hjá dýrinnu
Það nýjasta hja dýrinu mínu er ad stunda yoga! Á hverjum morgni kl 7 situr hun á gólfinnu inni hja ser med krosslagðar lappir og myndar hring med fingrum beggja handa. þannig situr hun i 10 min eða svo. Segist vera endurnærð og fersk eftir þetta allt saman, sem er svo rosaleg tilbreyting þvi yfirleitt er dýrið skapvont og uppstökkt á þessum tíma sólarhrings. Svo tekur skólinn við. Það er búið ad vera voða duglegt ad vinna það upp sem það missti med þvi ad flytjast med gömlu sinni erlendis en sá kraftur virðist nú algerlega horfin með hækkandi sólu. Dýrið nennir ekki ad gera neitt nema leika ser, hlusta a pink og horfa á popptíví. En það slagast i gegnum þessa tima í skólanum svo er stefnan tekin á verslunarmiðstöðinna sem er rétt hja skólanum. Dýrið og vinir hafa nefnilega undanfarna daga gengið á milli húsa og safnað á tombólu fyrir pink disknum! þetta hefur gengið svona dúndur vel ad þau eru komin í full bissnes þarna á stettinni. Til þess ad lífga uppá stemningunna eru dýrið og allur hópurinn með stóra eyrnalokka og rauðan varalit (yfir svona 1/5 af andlitunu!) Þegar gamla kemur og nær i dýrið er þad alltaf of snemma ad þess mati og frekar hallærislegt eitthvað. Gamla verður yfirleitt ad rökræða dýrið uppi farartækið.
Dýrið vill fara á Pink tónleikanna sem verða her í dalnum í sumar og finnst það gersamlega út i hött ad gamla sé ekki á þvi að leyfa þvi að fara. Gamla stendur stundum ráðþrota yfir dýrinnu sínu og ekki getur hun neitað þvi ad henni kvíði bara þó nokkuð fyrir þvi ad dýrið nái unglingsaldri med tilheyrandi skellum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home